Meðferðir

Ef einstaklingur eða par hefur reynt að eignast barn í eitt ár eða lengur án þess að þungun hafi orðið, telst það ófrjósemi. Talið er að um einn af hverjum sex upplifi slíkan vanda á einhverjum tímapunkti á ævinni.

Orsakir ófrjósemi geta legið hjá konunni, karlinum, báðum aðilum eða verið óútskýrðar. Einnig getur þörf fyrir frjósemismeðferð tengst félagslegum aðstæðum og fjölbreyttum fjölskyldumynstrum.

Algengar orsakir ófrjósemi hjá konum

  • Lokaðir eða skemmdir eggjaleiðarar
  • Legslímuflakk (endómetríósa)
  • Truflanir á egglosi
  • Minnkaður eggjastokkaforði
  • Hormónatruflanir

Algengar orsakir ófrjósemi hjá körlum

  • Fáar sáðfrumur í sæðisvökva
  • Skert hreyfigeta sáðfrumna
  • Lokaðar sáðrásir
  • Hormónatruflanir
  • Ónæmisfræðilegir þættir, svo sem mótefni gegn eigin sáðfrumum

Aldur hefur veruleg áhrif á frjósemi, bæði hjá konum og körlum. Einnig geta lífsstílsþættir eins og yfirvigt, undirvigt, reykingar, áfengisneysla og langvarandi streita haft áhrif á möguleika til getnaðar.

Í sumum tilfellum finnst engin skýr skýring á ófrjósemi þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir. Þá er talað um óútskýrða ófrjósemi.

Hjá Livio leggjum við áherslu á að greina undirliggjandi orsakir og bjóða upp á einstaklingsmiðaða meðferð sem tekur mið af þörfum, aðstæðum og markmiðum hvers og eins.

 

Bókaðu tíma hjá einum af sérfræðilæknum okkar í gegnum Noona, með tölvupósti á reykjavik@livio.is eða í síma 430-4000.

Sérfræðilæknar Livio

Snorri Einarsson er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum og hefur starfað við ófrjósemislækningar frá árinu 2006. Hann hlaut viðurkenningu í ófrjósemislækningum sem undirsérgrein árið 2012, lauk doktorsprófi 2021 og er jafnframt kennari við læknadeild Háskóla Íslands.

Tinna Baldvinsdóttir er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum. Hún lauk sérnámi við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg og varð sérfræðingur árið 2016. Eftir það hefur hún sérhæft sig í sónarskoðun og fósturgreiningu samhliða störfum sínum við fæðinga- og kvensjúkdómalækningar.

Þorbjörn Have Jónsson er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum með greiningu og meðferð frjósemisvandamála sem sitt aðalstarfssvið.